Um okkur

Um okkur

Hafa samband

Við tökum vel á móti þér!

  • Aðalheiður Hjelm
    Aðalheiður Hjelm Fótaaðgerðafræðingur og eigandi

    Aðalheiður Hjelm er nýr eigandi stofunnar Líkami og sál. Hún keypti stofuna af Jónu Björgu og tók við starfsemi í ágúst 2025. Jóna Björg hefur átt, og rekið, stofuna frá 2020. Móðir Jónu Bjargar, Hugrún Þorgeirsdóttir, stofnaði stofuna árið 1997 og rak hana þangað til árið 2014. Þá tók systir Jónu Bjargar , Fanney Dögg við stofunni og rak hana þangað til um áramót 2019-2020.

    Í lok árs 2019 lauk Aðalheiður námi í fótaaðgerðafræði frá Keili, með hæstu einkunn.  Hún byrjaði með rekstur Fótaaðgerðastofunnar Skref í Lönguhlíð 3 en flutti svo stofuna í Mörk, Suðurlandsbraut 66, í ágúst 2020 og starfaði þar þar til hún keypti Líkama og sál og flutti starfsemi sína alfarið í Mosfellsbæinn.

    Aðalheiður lauk námi í snyrtifræði frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1991, tók sveinspróf og lauk meistaraskólanum í beinu framhaldi. Hún starfaði á Saloon Ritz í byrjun og hefur starfað á fleiri stofum ásamt því að reka eigin stofu.

    Árið 1995 til aldamóta starfaði Aðalheiður sem flugfreyja hjá flugfélaginu Atlanta, og bjó að mestu leyti erlendis þau ár. Aðallega í Bretlandi en jafnframt í Saudi Arabíu og á Indlandi.

    Árið 1996 fór hún í 3ja mánaða förðunarnám í London, í Glauca Rossi School of make-up.

    Haustið 2000 hóf hún nám í hómópatíu við The college of practical homeopathy. Samhliða því námi lærði hún Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð við The Upledger Institute.

    Aðalheiður hefur endalausan áhuga á fólki yfirhöfuð og allri mannrækt, og tekur því á móti öllum með gleði.

     

  • Sólveig Sól Einarsdóttir Fótaaðgerðafræðingur

    Sólveig er elsti starfsmaðurinn hjá okkur á Líkama og Sál. Hún kom til okkar árið 2008 og hefur unnið hjá okkur síðan. Sólveig er löggiltur fótaðaðgerðafræðingur og starfar samhliða fótaðgerðunum á Skálatúni, þjónustukjarna fyrir fatlað fólk.
    Sólveig lærði fótaaðgerðir í Svía ríki og útstkrifaðist frá úr Axelsons Gymnastika Institut í Medicinsk Fotvård árið 1991 sem fótaaðgerðafræðingur. Einnig tók hún snyrtifræðinám frá Mona Lisa Cosmetologskolen í Kaupmannahöfn og lauk því árið 1992. Árið 2007 útskrifaðist Sólveig sem félagsliði frá Borgarholtsskóla. Árið 2009 dreif Sólveig sig enn og aftur í nám og útskrifaðist sem einkaþjálfari ÍAK frá Heilsuakademíunni 2009
    Sólveig hefur ma lokið við eftirfarnandi námskeið ; meðferð í fótum sykursjúkra , meðferð á fótum gigtveikra og meðferð á fótum aldraðra og mörg önnur.
    Það er alltaf stutt í húmorinn hjá Sólveigu. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og tekur á móti þér með breiðu brosi. Hún er röggsöm og vílar aldrei hlutina fyrir sér. Sólveig hefur gríðarlega mikinn blakáhuga og spilar blak af ástríðu. Þess á milli þegar hún er ekki á blakæfingunum knúsar hún barnabörnin sín og fer út að ganga með hundana sína á Kjalarnesinu.

Hafa samband

Erum ekki við eins og er, en sendu okkur línu og við höfum samband við fyrsta tækifæri

0