Aðalheiður HjelmFótaaðgerðafræðingur og eigandi

    Aðalheiður Hjelm er nýr eigandi stofunnar Líkami og sál. Hún keypti stofuna af Jónu Björgu og tók við starfsemi í ágúst 2025. Jóna Björg hefur átt, og rekið, stofuna frá 2020. Móðir Jónu Bjargar, Hugrún Þorgeirsdóttir, stofnaði stofuna árið 1997 og rak hana þangað til árið 2014. Þá tók systir Jónu Bjargar , Fanney Dögg við stofunni og rak hana þangað til um áramót 2019-2020.

    Í lok árs 2019 lauk Aðalheiður námi í fótaaðgerðafræði frá Keili, með hæstu einkunn.  Hún byrjaði með rekstur Fótaaðgerðastofunnar Skref í Lönguhlíð 3 en flutti svo stofuna í Mörk, Suðurlandsbraut 66, í ágúst 2020 og starfaði þar þar til hún keypti Líkama og sál og flutti starfsemi sína alfarið í Mosfellsbæinn.

    Aðalheiður lauk námi í snyrtifræði frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1991, tók sveinspróf og lauk meistaraskólanum í beinu framhaldi. Hún starfaði á Saloon Ritz í byrjun og hefur starfað á fleiri stofum ásamt því að reka eigin stofu.

    Árið 1995 til aldamóta starfaði Aðalheiður sem flugfreyja hjá flugfélaginu Atlanta, og bjó að mestu leyti erlendis þau ár. Aðallega í Bretlandi en jafnframt í Saudi Arabíu og á Indlandi.

    Árið 1996 fór hún í 3ja mánaða förðunarnám í London, í Glauca Rossi School of make-up.

    Haustið 2000 hóf hún nám í hómópatíu við The college of practical homeopathy. Samhliða því námi lærði hún Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð við The Upledger Institute.

    Aðalheiður hefur endalausan áhuga á fólki yfirhöfuð og allri mannrækt, og tekur því á móti öllum með gleði.

     

    Hafa samband

    Erum ekki við eins og er, en sendu okkur línu og við höfum samband við fyrsta tækifæri

    0